Vettvangur vaxtar og verðmætasköpunar á Suðurlandi

6. nóv 2026 10:00-16:00
7. nóv 2026 11:00-16:00

Drög að dagskrá Uppsprettu Suðurlands

Föstudagur 6. nóvember: Fagdagur & ráðstefna

  • 11:00 – Lokaviðburður Startup Landið: Teymi úr viðskiptahraðlinum Startup Landið stíga á svið og sín verkefni.
  • 12:00 – Sýningarsvæði opnar: Kynntu þér sunnlensk fyrirtæki og nýsköpunarverkefni.
  • 13:00 – Nýsköpunarstefna Suðurlands: Formleg kynning á fyrstu nýsköpunarstefnu landshlutans.
  • 14:00 – Nýsköpun í dreifðum byggðum: Erindi og umræður um sóknarmöguleika landsbyggðarinnar.
  • 14:30 – Nýsköpun innan starfandi fyrirtækja: Hvernig búa rótgróin fyrirtæki til nýjar vörur og verðmæti?
  • 15:00 – Happy Hour & Tengslamyndun: Óformlegur og skemmtilegur vettvangur til að stækka tengslanetið.

 

Laugardagur 7. nóvember: Opin hátíð fyrir almenning

  • 11:00–16:00 – Sýningarsvæði opið öllum: Svæðið opið fyrir íbúa Suðurlands og gesti! Tilvalið fyrir alla fjölskylduna til að koma, kynnast starfsemi sunnlenskra fyrirtækja af eigin raun, prófa tæki, tól og aðrar lausnir og sjá hvað er um að vera í sunnlensku atvinnulífi.