Komdu fyrirtækinu þínu á framfæri þar sem hugmyndir, tengsl og tækifæri verða til.

6. nóv 2026 10:00-16:00
7. nóv 2026 11:00-16:00

Einstakt tækifæri til að auka sýnileika, mynda ný tengsl og sýna fram á þann kraft sem býr í atvinnulífi Suðurlands

Uppspretta Suðurlands verður vettvangur þar sem fyrirtæki geta kynnt vörur sínar, þjónustu, lausnir og framtíðarsýn fyrir fjölbreyttum hópi gesta.

Þátttaka gefur fyrirtækjum tækifæri til að segja sína sögu, sýna hvað þau eru að þróa og draga fram hvernig nýsköpun birtist í þeirra daglega rekstri. 

Sýningin er einnig mikilvægur tengslavettvangur. Þar geta fyrirtæki hitt mögulega samstarfsaðila, kynnst nýjum hugmyndum, fengið innblástur og átt samtal við aðila sem geta stutt við áframhaldandi þróun. Slík tengsl geta leitt til nýrra verkefna, samstarfs, viðskiptatækifæra eða aukinnar þekkingar.

Með þátttöku taka fyrirtæki jafnframt þátt í að móta stærri sögu Suðurlands sem öflugs svæðis nýsköpunar, verðmætasköpunar og framtíðaruppbyggingar. Sýningin er því ekki aðeins kynningartækifæri fyrir hvert fyrirtæki, heldur sameiginlegt átak til að sýna hvað Suðurland hefur fram að færa  og hversu mikil tækifæri felast í landshlutanum.

 
 

Verð og aðrar upplýsingar

 




ATH þarf að uppfæra Fyrirtæki geta bætt við aukahlutum á bása samkvæmt verðskrá sýningarkerfa:  Aukahlutir verð og pöntun